Aðalfundur knattspyrnudeildar 24.febrúar kl 20:00
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar verður haldinn mánudaginn 24. febrúar klukkan 20:00 og fer fram í íþróttamiðstöðinni Vogum.
Knattspyrnudeild Þróttar rekur meistaraflokk félagsins í knattspyrnu, getraunadeild félagsins og kemur auk þess að hinum ýmsu verkefnum í samstarfi við aðalstjórn félagsins.
Dagskrá fundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar lögð fram.
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
4. Kosið í stjórn.
5. Önnur mál.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa í stjórn er bent á að hafa samband við starfsmann Þróttar í síma 892-6789.
Þrír eru í stjórn deildarinnar og tveir varamenn.
Vonumst til að sjá sem flesta !!!
Kveðja, stjórn Knattspyrnudeildar Þróttar