Verndun og velferð barna

Verndun og velferð barna

Hvaða barn sem er getur orðið fyrir ofbeldi. Öll börn eiga rétt á að vera vernduð gegn ofbeldi. En mikilvægt er að gera allt sem unnt er til að vernda börn gegn því að verða fyrir ofbeldi í hverskyns mynd.

Ofbeldi getur verið líkamlegt, andlegt og kynferðislegt. Refsingar og einelti eru líka ofbeldi. Um líkamlegt ofbeldi er að ræða þegar einstaklingur er meiddur viljandi. Dæmi um andlegt ofbeldi er þegar talað er niður til einhvers eða sett út á orð, athafnir eða útlit. Kynferðislegt ofbeldi getur verið allt frá kynferðislegu- eða klámfengnu tali, myndbirtingum, snertingum og til nauðgunar. Ofbeldi getur átt sér stað innan heimilis sem og utan.

Öllum er skylt að tilkynna grun um ofbeldi gegn barni til barnaverndarnefndar í því sveitarfélagi sem barnið býr eða í 112 utan dagvinnutíma. Börn geta sjálf tilkynnt um ofbeldi gegn sér til barnaverndar og eiga þau þá að fá stuðning og hjálp.

Barnaheill

Ungmennafélagið Þróttur vinnur eftir samræmdri viðbraðgsáætlun íþrótta - og æskulýðsstarfs.

Viðbragðsáætlun