
Siðareglur
Stjórnarmaður / starfsmaður
Hvetur félagsmenn til að standa vörð um anda og gildi félagsins og sér um að hvoru tveggja lifi áfram meðal félagsmanna.
Kemur fram við alla félagsmenn sem jafningja, óháð kyni, getu, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, litarhætti og kynhneigð.
Viðhefur ávallt lýðræðisleg vinnubrögð.
Upplýsir félagsmenn og gerir þá að þátttakendum í ákvarðanatöku innan félagsins.
Er til fyrirmyndar hvað varðar hegðun og framkomu innan félags sem utan.
Ber ábyrgð gagnvart félaginu og iðkendum.
Er meðvitaður um að félagið byggir upp og mótar einstaklinga.
Rekur félagið eftir löglegum reiknisskilaaðferðum og hagar útgjöldum í samræmi við tekjur.
Notfærir aldrei stöðu sína hjá félaginu til eigin framdráttar á kostnað félagsins.
Nýtir gagnrýni félagsmanna til uppbyggingar í félaginu.
Þjálfari
Kemur fram við alla iðkendur á einstaklingsgrunni og út frá þeirra forsendum.
Velur æfingar, mót, keppnir sem eru við hæfi iðkenda með tilliti til aldurs, reynslu og hæfileika.
Styrkir jákvæða hegðun og framkomu iðkenda.
Heldur á lofti heiðarleika (Fair Play) innan íþróttarinnar.
Kennir iðkendum að viðurkenna og bera virðingu fyrir ákvörðunum dómara.
Kennir iðkendum að bera ábyrgð á eigin hegðun og framförum í íþróttinni.
Er heiðarlegur, jákvæður, réttlátur og umhyggjusamur gagnvart iðkendum.
Viðhefur jákvæða gagnrýni og forðast neikvæða gagnrýni.
Hugsar ávallt um heilsu og heilbrigði iðkenda og varast að setja þá í aðstöðu sem gæti ógnað heilbrigði þeirra.
Talar gegn notkun ólöglegra lyfja.
Talar gegn neyslu áfengis og tóbaks.
Leitar eftir samstarfi við aðra þjálfara eða sérfræðinga þegar þess þarf.
Viðurkennir rétt iðkandans til að leita ráða frá öðrum þjálfurum.
Samþykkir aldrei ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
Forðast náið samband við iðkendur og forðast að vera einn með iðkanda.
Þarf leyfi forráðamanna yngri iðkenda til að aka þeim á æfingar eða í leiki.
Er meðvitaður um hlutverk sitt sem fyrirmynd bæði utan og innan vallar.
Kemur eins fram við alla iðkendur óháð, getu, kyni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum og kynhneigð.
Notfærir sér aldrei aðstöðu sína sem þjálfari til að uppfylla eigin áhuga á kostnað iðkandans.
Er ábyrgur á félagslegri, andlegri og líkamlegri uppbyggingu iðkenda.
Hlustar eftir skoðunum iðkenda og fer eftir þeim þegar við á.
Er ábyrgur fyrir stemmingunni í hópnum.
Er börnum fyrirmynd í því að taka ósigri með jafnaðargeði, taka sigri hrokalaust og sýna andstæðingum kurteisi.
Yngri Iðkandi
Gerir alltaf sitt besta.
Virðir alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika (Fair Play) í íþróttum.
Sýnir öllum iðkendum virðingu, samherjum sem mótherjum.
Ber virðingu, er heiðarlegur og opinn gagnvart þjálfurum og forystufólki félagsins sem ber ábyrgð á sér við æfingar og keppni.
Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um samherja, mótherja, dómara, þjálfara eða starfsmenn félagsins.
Kemur fram við aðra eins og hann vill að aðrir komi fram við sig.
Sýnir stundvísi við mætingar á æfingu, í keppni og í annað sem viðkemur félaginu.
Virðir ákvarðanir dómara og annarra starfsmanna leiksins eða mótsins.
Sýnir aldrei ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
Ber virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra.
Tekur ábyrgð á framförum sínum og þroska.
Er til fyrirmyndar í framkomu og hegðun innan sem utan vallar.
Eldri iðkandi
Hugsar um heilbrigði sitt, forðast að taka áhættu varðandi heilsu sína og notar aldrei ólögleg lyf til að bæta eigin árangur í íþróttum.
Er fyrirmynd yngri iðkenda félagsins.
Forðast náin samskipti við þjálfara sinn.
Foreldri / forráðamaður
Hvetur börn til þátttöku í íþróttum, þvingar þau aldrei.
Hrósar öllum iðkendum á meðan æfingu, leik eða keppni stendur ekki aðeins sínu barni.
Hvetur iðkendur bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs.
Gerir ekki grín að iðkanda ef mistök eiga sér stað.
Hvetur iðkendur til að fara eftir og virða reglur íþróttanna og leysa deilur án fjandskapar eða ofbeldis.
Er börnum fyrirmynd í því að taka ósigri með jafnaðargeði, taka sigri hrokalaust og sýna andstæðingum kurteisi.
Lærir að meta þátttöku sjálfboðaliða hjá félaginu því án þeirra hefðu iðkendur ekki möguleika á að stunda æfingar og keppni með félaginu.
Ber virðingu fyrir störfum þjálfarans og reynir ekki að hafa áhrif á störf hans meðan á leik eða keppni stendur.
Lítur á dómarann sem leiðbeinanda iðkenda, gagnrýnir ekki ákvarðanir hans.
Ræðir við barn um hvernig æfing, mót eða leikur hafi gengið og hvort það hafi verið skemmtilegt eða spennandi, úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
Virðir rétt hvers iðkanda óháð kyni, kynstofni eða trúarbrögðum.
Lætur áhuga barna og ánægju af íþróttaiðkun stýra íþróttaþátttöku þeirra. Börn eiga ekki að vera í íþróttum eingöngu til að gleðja forráðamenn.
Viðurlög
Ef iðkandi brýtur gegn einhverri siðareglum UMFÞ fær hann áminningu frá þjálfara.
Ef iðkandi brýtur gegn sömu siðareglu í annað sinn þarf hann að sitja á bekknum og horfa á í 10 – 15 mínútur.
Ef iðkandi brýtur í þriðja sinn gegn sömu siðareglu UMFÞ skal hann sitja á bekknum þar til æfingu er lokið. Þjálfari ræðir við iðkanda og hringir í foreldra/forráðamanna til að skýra stöðu mála og leita viðeigandi lausna.
Ef iðkandi brýtur í fjórða sinn gegn sömu siðareglu UMFÞ skal fundað með foreldrum og fundin varanleg lausn á þeim vanda sem upp er kominn.