Jafnréttisstefna

Þróttur leggur mikla áherslu á að fordómar, einelti og ójafnrétti þrífist ekki innan félagsins.

Félagið stuðlar að jöfnum rétti kynja og kynþátta. Þá skulu allir iðkendur og aðilar innan félagsins getað stundað íþróttir og vinnu óháð kynferði og kynþætti. Til að stuðla að jafnrétti kynja og kynþátta leggur Ungmennafélagið Þróttur áherslu á:

  • Að jafnréttissjónarmiða sé gætt í hvívetna í öllu starfi félagsins og að hvers kyns kynja- eða kynþáttamismunum verði ekki liðin.

  • Að veita báðum kynjum tækifæri á að æfa jafn mikið og jafn oft og gera engan greinarmun á drengja- og stúlknaflokkum við útdeilingu æfingatíma.

  • Að hafa vel menntaða og hæfa þjálfara í öllum flokkum. Gerðar eru sömu ráðningarkröfur til þjálfara drengja- og stúlknaflokka og að sömu laun eru greidd fyrir vinnu þjálfara í karla og kvennaflokka.

  • Að iðkendur, félagsmenn og starfsmenn hafi ekki uppi orð eða athafnir sem líta má á sem kynja- eða kynþáttamisrétti gagnvart öðrum, hvort sem um ræðir einstaklinga eða hópa innan eða utan félagsins. Áhersla er lögð á að iðkendur og aðrir félagsmenn geri ekki athugasemdir við litarhátt, talsmáta eða annað í fari iðkenda, ættingja þeirra eða keppinauta sem skilja má sem særandi athugasemd um uppruna þeirra

  • Að iðkendur og aðrir félagsmenn séu meðvitaðir um menningarmun.

  • Að iðkendur og aðrir félagsmenn leggi sig fram um að aðstoða innflytjendur við aðlögun að félagsstarfi Þróttar.