Eineltisstefna

Ef grunur um einelti vaknar (vegna ábendinga frá iðkendum, foreldrum, þjálfurum eða öðrum starfmönnum) þá er:

  1. Þjálfari flokksins er látinn vita.

  2. Þjálfari hefur samband við heimili barnsins og gerir grein fyrir því að grunur um einelti hafi komið upp. Foreldrar eru fullvissaðir um að næstu 2-3 vikurnar verði sérstaklega fylgst með barninu til að kanna hvort að um einelti sé að ræða.

  3. Þjálfarinn veitir hegðuninni gaumgæfilega athygli í 3 – 4 æfingar til að fullvissa sig um að um einelti sé að ræða. Hann þarf að skrá ítarlega hjá sér tilvik (m.a. félagslega einangrun og háðsglósur)

  4. Þjálfari kannar hjá starfsmönnum íþróttahúss, skóla og öðrum sem koma að barninu hvort einhver hafi orðið var við einelti.

  5. Ef málið snertir hegðun barna í öðrum flokkum er unnið í samráði við aðra þjálfara.

  6. Eftir athugun hittast þjálfari, yfirþjálfari og framkvæmdastjóri þar sem farið er yfir málið og meta hvort ástæða er til að bregðast frekar við.

  7. Haldinn er fundur með foreldrum þar sem þeir eru látnir vita af niðurstöðu málsins.

  8. Ef um einelti er að ræða er unnin aðgerðaáætlun sem miðast að því að koma í veg fyrir frekara einelti. Framkvæmdastjóri stjórnar eftirfylgni á aðgerðaráætluninni. Áætlunina skal endurskoða eftir því sem vinnunni miðar.

  9. Endurmat og endurskoðun í samvinnu við deildarstjóra fjórum vikum síðar og oftar ef þörf krefur.