Aðalfundur UMFÞ 7.mars kl 18:30

Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar verður haldinn fimmtudaginn 7.mars klukkan 18:30 í Vogabæjarhöllinni (sal félagsmiðstöðvar).

 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

 

-Formaður félagsins setur fundinn

-Kosnir eru fundarstjóri og fundarritari

-Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram

-Skýrsla stjórnar

-Ársreikningur 2023 lagður fram til samþykktar

-Kosning formanns og annara stjórnarmeðlima

-Ákveðið félagsgjald

-Önnur mál


Látum íþróttamál og æskulýðsmál í Sveitarfélaginu Vogum okkur varða. Sýnum samstöðu og höldum áfram að efla gott starf, það getum við gert í sameiningu. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að starfa í stjórn að senda póst á throttur@throttur.net.

 

Allir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald fyrir árið 2023 eru með atkvæðisrétt á fundinum. Hægt er að hafa samband við skrifstofu UMFÞ eða greiða á staðnum. 



Previous
Previous

Henntugar hendur handa Landsmóti

Next
Next

Aðalfundur knattspyrnudeildar 5.mars kl 18:30