Sumarstarfsfólk óskast!!

Með mars 9, 2023 Fréttir

Starfsfólk óskast í sumarafleysingar í íþróttamiðstöð Vogum.

Við erum að leita af þrem hressum og duglegum einstaklingum til að starfa með okkur í sumar í íþróttamiðstöðinni  Vogum.

Um er að ræða hlutastarf yfir sumartíman í íþróttamiðstöðinni Vogum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, geta staðist eða hafa lokið námskeiði í skyndihjálp og sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.

Í starfi sundlaugarvarðar felst m.a:

  • Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
  • Klefavarsla/baðvarsla/gangavarsla/ rýmisvarsla í klefum.
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti.
  • Þrif.

Hæfniskröfur:

  • Ábyrgð í starfi.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum kostur.
  • Tölvukunnátta.
  • Reyklaus
  • Hreint sakavottorð.

 Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Petra Ruth Rúnarsdóttir petra@throtturvogum.is

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2023.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á netfangið petra@throtturvogum.is