
Logi Friðriksson markvörður 4. flokks Þróttar hefur verið valinn í verkefnið Hæfileikamótun KSÍ fyrir 2006 árganginn á Íslandi.
Tilgangur markmið verkefnisins er að fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðið.
Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu.