
Stofnfiskur styður barna- og unglingastarf Þróttar Vogum með myndarlegum hætti.
Það er mikilvægt að standa saman á tímum sem þessum. Allir iðkendur Þróttar skráðir í Nóra fá gjöf í desember. Markmiðið er að efla félagsandann í félaginu, hlúa að krökkunum, sjá til þess að allir iðkendur séu vel merktir félaginu á öllum mótum og koma til móts við iðkendur sem hafa misst úr æfingar vegna Covid.
Vegna Covid þurfa forráðamenn að nálgast vindjakka í verslun Jakosport sem er að finna við Smiðjuveg 74 í Kópavogi milli klukkan 09:00 – 18:00, frá og með 2. des til 15. des.
Einnig er opið á laugardögum klukkan 10:00 til 14:00.
Aðeins iðkendur sem eru í íþróttagreinum sem eru starfandi sjö mánuði eða lengur samfleytt.
Júdó, sund, unglingahreysti og knattspyrna. Farið verður eftir skráningum í Nóra dags. 29. nóv.
Foreldrafélag Þróttar er einnig að fara gefa öllum iðkendum jóladagatöl á næstu dögum. Því biðjum við þá forráðamenn sem eru ekki búnir að skrá sína iðkendur til leiks að bregðast strax við þar sem farið verður eftir skráningum í dag.