Félagskaffi Þróttar á laugardögum !
Við hjá Þrótti Vogum ætlum að efla félagsstarfið enn frekar hjá okkur í vetur og verðum með opið hús í Vogabæjarhöllinni alla laugardaga í vetur milli kl. 11:00 og 13:00. Þangað geta allir komið í kaffi, hitt gamla félaga og kynnst nýjum úr okkar skemmtilega hópi. Við byrjum formlega laugardaginn 5. febrúar. Enn fremur geta allir tekið þátt í innanfélagsleik okkar í getraunum og sýnt snilli sína á því sviði.
Kunnir þú ekki að tippa þá eru sérfræðingar okkar boðnir og búnir að aðstoða þig. Hafir þú ekki áhuga á að tippa er það líka í góðu lagi svo framarlega sem þú mætir með góða skapið.
Hlökkum til að sjá þig.
Tippstjórar eru sem fyrr, Anna og Guðrún.