
Í gær fór fram leikur Þróttar Vogum og Stál-úlfs í 2.deild Karla. Þróttarar sigruðu leikinn með 15 stigum og voru lokatölur leiksins 94-79. Leikurinn var jafn framan af en Þróttarar náðu tökum á leiknum í seinni hálfleik. Í þriðja leikhluta sauð upp úr og leikmaður Stál-úlfs var rekinn af velli.
Þróttur situr nú í öðru sæti deildarinnar með 8 stig eftir fimm leiki en þeir hafa ekki tapað leik síðan þeir heimsóttu Ármann í fyrstu umferð deildarinnar.
Næsti leikur Þróttar fer fram 21.nóvember en þá heimsækjum við nágranna okkar Keflavík B, leikurinn hefst klukkan 18:00 í BLUE-höllinni.
Áfram Þróttur!!
Myndir/ Guðmann Rúnar og Jóna Kristbjörg.

Markmið sjóðsins er að styrkja efnaminni iðkendur til þátttöku í starfi barna- og unglingastarfs Þróttar, styrkja iðkendur um mótagjöld, ferðakostnað vegna keppnisferða og veita styrki til kaupa á æfingabúnaði, til að mynda á skóm og æfingafatnaði í tengslum við stærri mót. Við hvetjum alla Þróttara og bæjarbúa til að kynna sér reglurnar. Tekið verður á móti umsóknum til 29. nóvember nk.
Einnig er hægt að koma ábendingum eða speuningum til framkvæmdastjóra félagsins – Trúnaður og nafnleynd gildir um allar umsóknir.
Throttur@throttur.net eða í síma 892-6789 alla virka daga milli klukkan 09:15 – 17:00.
Minningarsjóður Hróars
Úthlutunarreglur/Reglugerð
- grein
Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Hróars. Sjóðurinn er stofnaður í minningu Baldvins Hróars Jónssonar f. 24.apríl 1980, d. 9.júlí 2020. Sjóðurinn skal að öllu leyti vinna samkvæmt skipulagsskrá sem aðalstjórn Ungmennafélagsins Þróttar, fulltrúi fjölskyldu Hróars og framkvæmdarstjóri Nesbúeggja ehf. hefur staðfest.
- grein
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnaminni iðkendur til þátttöku í starfi barna- og unglingastarfs Þróttar. Minningarsjóður Hróars mun, eftir bestu getu, styrkja iðkendur um mótagjöld, ferðakostnað vegna keppnisferða og veita styrki til kaupa á æfingabúnaði, til að mynda á skóm og æfingafatnaði í tengslum við stærri mót.
- grein
Stjórn sjóðsins er á hverjum tíma skipuð þremur aðilum. Einn stjórnarmaður skal árlega tilnefndur af fjölskyldu Hróars. Annar skal vera formaður Þróttar og sá þriðji skal vera starfandi framkvæmdastjóri Þróttar, sbr. Ákvæði 5. gr. skipulagsskrár. Gjaldkeri sjóðsins skal vera fulltrúi fjölskyldunnar.
- grein
Foreldrar, forráðamenn iðkenda og þjálfarar innan Þróttar geta sótt um styrk úr sjóðnum. Flokkar, hópar eða einstaklingar innan flokka félagsins geta sótt um styrki vegna stærri móta. Styrkir eru ekki veittir úr sjóðnum til reglubundinna móta (Íslandsmót, bikarkeppni, dagsmóta og þess háttar). Eingöngu til stærri móta og skal hver styrkur ekki vera hærri en 25.000 kr.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að meta umsóknir í samræmi við 4. gr. skipulagsskrár.
- grein
Veita skal styrki úr sjóðnum a.m.k. einu sinni á ári. Sjóðsstjórn getur þó metið það eftir þörfum og áskilur sér rétt til að veita úr sjóðnum allt að tvisvar sinnum á ári. Umsóknir skulu berast til framkvæmdastjóra UMFÞ í umslagi merktu Minningarsjóður Hróars. Umsóknir og önnur gögn varðandi umsóknir skulu meðhöndluð sem trúnaðarmál. Sjóðsstjórn ber að svara öllum umsóknum með formlegum hætti.
- grein
Styrkir til einstaklinga vegna sérstakra aðstæðna geta tekið yfir æfingagjöld og annan kostnað við þátttöku í íþróttinni. Styrkir vegna ferðakostnaðar miðast við almennan kostnað (flugmiða, rútuferðir og gistingu), við þátttöku í móti eða annan kostnað sem til fellur vegna æfinga- eða keppnisferðar.
Styrkir vegna starfsemi yngri flokka eru ekki veittir til launakostnaðar.
- grein
Styrkir verða greiddir út í síðasta lagi tveimur vikum eftir úthlutun.
- grein
Úthlutunarreglur þessar skal endurskoða árlega og vera samþykktar af aðalstjórn UMFÞ.
Skipulagsskrá fyrir Minningarsjóð Hróars
- grein.
Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Hróars. Hann er rekinn undir merkjum Ungmennafélagsins Þróttar, heimilsfangið er Hafnargata, 190 Vogum og kennitala félagsins er 640289-2529, sér bók skal stofnuð fyrir sjóðinn og gjaldkeri sjóðsins hafa prókúru á reikninginn og sjá um geiðslur til UMFÞ eftir úthlutanir. Stofnendur sjóðsins eru Marteinn Ægisson, kt. 200379-3499, Petra Ruth Rúnarsd. og Nesbúegg kt. 711203-2140.
- grein.
Stofnfé sjóðsins er sjálfsaflafé frá Nesbúeggjum sem nemur 150.000 kr. Sá afgangur sem árlega kann að standa eftir hverja úthlutun skal vera áfram inná reikningi Minningarsjóðs Hróars.
- grein
Tekjur sjóðsins eru fyrst og fremst gjafafé þeirra sem vilja leggja sjóðnum lið á hverju ári. Styrkur frá Nesbúeggjum. (150.000 kr. á ári) sem endurskoðast af framkvæmdastjóra Nesbúeggja efh. árlega. Aðalstjórn UMFÞ leggur til 70.000 kr. af árlegum lottógreiðslum inná reikning sjóðsins á hverju ári. Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksár. Fyrsta reikningstímabil sjóðsins er 2021.
- grein.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnaminni iðkendur til þátttöku í starfi barna- og unglingastarfs Þróttar. Minningarsjóður Hróars mun, eftir bestu getu, styrkja iðkendur um æfingagjöld, ferðakostnað vegna keppnisferða og veita styrki til kaupa á æfingabúnaði, til að mynda skóm og æfingafatnaði. Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til þess að meta umsóknir eftir þörfum.
- grein.
Stjórn sjóðsins er á hverjum tíma skipuð þremur aðilum og skal meirihluti stjórnar ráða um ákvarðanir hennar hverju sinni. Einn stjórnarmaður skal árlega tilnefndur af fjölskyldu Hróars. Annar stjórnarmaður skal vera formaður UMFÞ. og sá þriðji skal vera starfandi framkvæmdastjóri UMFÞ. Stjórnarmenn þiggja ekki þóknun fyrir störf sín.
- grein.
Stjórn sjóðsins skal skila inn stöðu sjóðsins fyrir aðalfund UMFÞ sem haldin er í febrúar ár hvert ásamt yfirliti til Nesbúeggja ehf.
7.gr.
Verði sjóðurinn lagður niður skal fé hans renna til umgmennastarfs UMFÞ.
Vogar, 11. janúar 2021
F.h. UMFÞ
Marteinn Ægisson og Petra. Ruth Rúnarsdóttir.

Jólahappdrætti meistaraflokks Þróttar er mikilvægasta fjáröflun í starfsemi meistaraflokks Þróttar á hverju ári.
Knattspyrnudeild Þróttar kann öllum styrktaraðilum miklar þakkir fyrir að styrkja félagið með þessum hætti. Einnig hvetjum við félagsmenn til að kynna sér starfsemi þessara fyrirtækja fyrir jólin.
Hægt verður að kaupa miða með athugasemdum á samfélagsmiðlum eða á skrifstofu félagsins – Við göngum í hús 3. des nk. Síðast seldist upp og ekki tókst að klára allar götum. Allir miðar gilda á fyrsta heimaleik meistaraflokks.
Reikningsupplýsingar: 0142-05-071070 – 640212-0390.
1X 1500 kr.
3X 3500 kr.
5x 5000 kr.
10x 7500 kr.
Við drögum út 15. des – Hægt verður að nálgast vinninga á skrifstofu félagsins til 20. des og aftur í byrjun árs. Ósóttir vinningar renna til félagsins eftir 1. mars.
Vinningar 2021.
- Gjafabréf frá Icelandair 70. þús
- Cintamani gjafabréf 25. þús
- Gisting fyrir tvo á Stracta
- Gisting fyrir tvo á Hótel Keflavík
- Gisting fyrir tvo á Fosshótel í Reykjavík
- Canon Pixma prentari frá Omnis
- MasterClass námskeið hjá Akademias að upphæð 40þús
- Gjafabréf frá Hlaupár að upphæð 20þús
- Sérefni gjafabréf 20þús
- Sérefni gjafabréf 20þús
- Sérefni gjafabréf 20þús
- Jepplingur með ótakmörkuðum akstri og tryggingu í tvo daga frá Hertz
- Gjafabréf að verðmæti 10þús frá Jómfrúnni
- Tveir mán. áskrift að Stöð 2+ frá Vodafone
- Gjafabréf á Tapaz barinn
- Gjafakort að verðmæti 10þús frá Húrra Reykjavík
- Premium aðgangur fyrir tvo og húðvörur frá Bláalóninu
- Premium aðgangur fyrir tvo og húðvörur frá Bláalóninu
- Glaðningur frá Geo Silicia – 3ja mánaða skammtur af Recover fyrir vöðva og tauga að verðmæti 15þús
- Vogaídýfur og sósur frá frá Vogaídýfu
- Golfklúbbur GVS fimm skipta kort á fallegasta velli landsins
- Golfklúbbur GVS fimm skipta kort á fallegasta velli landsins
- Bíómiðar frá Laugarásbíó.
- Bíómiðar frá Laugarásbíó.
- Bíómiðar frá Laugarásbíó.
- Bíómiðar frá Laugarásbíó.
- Bíómiðar frá Laugarásbíó.
- Gjafabréf frá Suðurbæjarlaug sem gildir í sund og gufu
- Gjafabréf frá Suðurbæjarlaug sem gildir í sund og gufu
- Gjafabréf frá Suðurbæjarlaug sem gildir í sund og gufu
- Gjafabréf frá Suðurbæjarlaug sem gildir í sund
- Gjafabréf frá Suðurbæjarlaug sem gildir í sund
- Gjafabréf frá Suðurbæjarlaug sem gildir í sund
- Glaðningur frá Hérastubb í Grindavík
- Glaðningur frá Hérastubb í Grindavík
- Glaðningur frá Hérastubb í Grindavík
- Glaðningur frá Hérastubb í Grindavík
- Glaðningur frá Smassborgurum
- Glaðningur frá Smassborgurum
- Umfelgun frá BJB Hafnarfirði.
- Umfelgun frá BJB Hafnarfirði.
- Gjafabréf í Keiluhöllina
- Gjafabréf í Keiluhöllina
- Golfklúbbur GVS tíu skipta kort á fallegasta velli landsins.
- Gjafabréf frá Skyggni 10þús (Allir alvöru Vogabúar og Þróttarar taka þátt í sínu samfélagi með kaupum á flugeldum frá sinni heimabyggð)
- Gjafabréf frá Skyggni 10þús (Allir alvöru Vogabúar og Þróttarar taka þátt í sínu samfélagi með kaupum á flugeldum frá sinni heimabyggð)
- Gjafabréf frá Skyggni 10þús (Allir alvöru Vogabúar og Þróttarar taka þátt í sínu samfélagi með kaupum á flugeldum frá sinni heimabyggð)
- Undri ehf – Inneignarkort í bónus 10þús
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Vefáskrift í heilt ár að Stundinni – hver að verðmæti 23.880 kr.
- Mánaðarkort í Vogaþrek að verðmæti 12þús
- Gjafabréf á KFC
Nýlegar athugasemdir